Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Flokkar

æfingabúðir dagur 3

05. janúar 2009 klukkan 19:42
jæja þá er þessi dagur búin með tveimur helvíti erfiðum en góðum æfingum, ég meira segja tókst að kasta á þessu fallega uchi-mata sem ég geri nú aldrei Wink kynntist líka tveimur rosa fínum Finnskum stelpum og fékk e-mailið hjá þeim til að geta kannski kíkt þangað í mánuð eða svo í sumar, það væri snilld þar sem finnar eru líkeglegast með sterkustu stelpurnar á Norðurlöndunum.. EN bara ein æfing eftir og þarf ég mikla hvatningu þar sem öxlin á mer er í rugli og allir vöðvar líkamans eru gjörsamlega búnir en ég er líka búin að glíma allar glímurnar og hef engan til að hvetja mig áfram svo ég er sátt við sjálfa migWink

kv anna soffia
Anna Soffia Vikingsdottir

æfingabúðir Boras dagur 2

04. janúar 2009 klukkan 19:37
jæja þá er dagur tvö senn á enda og voru 2 tveggja tíma æfingar í dag, og gekk helvíti vel, var að ná nokkuð góðum köstum og að stjórna tökunum.... Enn eitt sem hefur alltaf einkennt æfingabúðir er illa ógeðslegur matur (t.d kjöt í myrkri og ofursoðið pasta og fleira) En þessi matur er með því versta sem ég hef orðið vitni að og er ekki íþróttamönnum sæmandi svo ef ég verð 40 kg þegar ég kem heim þá vil ég þakka þessum frábæra kokki og hinum alræmdu útrásarvíkingum þar sem ég tími ekki að kaupa mér að borða Sealed svo er maður bara flottur með blöðrur á puttum það var meira segja vont að fara í sturtu, svo eru það marblettir eftir "sóp" og glæsilegt glóðuraugaWink yndislegt

kv anna
Anna Soffia Vikingsdottir

fyrsta æfingin

03. janúar 2009 klukkan 19:54
jæja var að koma af fyrstu æfingunni og líðan er frábær, kom sjálfri mér á óvart hvað varðaði tökin en ég gjörsamlega slátraði öllum stelpunum í tökunum, svo ég er að fá e-h út úr því að vera alltaf að glíma við strákaLaughing En ég náði líka allmörgum köstum , get varla beðið eftir næstu æfingu en það eru 2 æfingar á morgun svo eins gott að fara snemma að sofa og vera úthvíld fyrir morgun daginnWink En annars er þetta búið að vera viðburðalítill dagur þar sem ég náði að sofa til hádegis sem mér veitti ekki af eftir þetta ljóta ferðalag..

Kv Anna SterkaCool
Anna Soffia Vikingsdottir

Komst á leiðarenda

02. janúar 2009 klukkan 10:46
Jæja þá er ég loksins komin á leiðarenda.. Í gær var ferðalagið mikla sem byrjaði á flugferð með fullt af blindfullum íslenskum vitleysingum, En þar sem þreytan náði yfirhöndinni náði ég að sofa það flug(ótrúlegt en satt) En svo var planið að setjast upp í lest og vera svo bara komin en nei þurfti að skipta 3 um lest og að bíða í 2 og hálfan tíma á lestarstöð í Malmö en loksins komst ég til Boras og fékk að gista fyrstu nóttina hjá einum svíanum þar sem Hostelið var lokað. En er komin núna upp á Hostel og er svo heppin að vera ein í herbergi með þráðlaust internet.. Laughing En svo er það fyrsta æfingin í kvöld sem er reyndar bara með sænska liðinu þar sem æfingabúðirnar byrja ekki fyrr en á morgun og þá eru tvær æfingar á dag þar til á þriðjudag...


Kv anna soffia
Anna Soffia Vikingsdottir

Gleðilegt nýtt ár

01. janúar 2009 klukkan 06:51
ég byrja árið aldeilis vel er komin á keflavíkurflugvöll sem er gott útaf fyrir sig þar sem var ekki mikið um svefn í nótt, en stefni að því að taka hann út í flugvélinni og lestinniLaughing En ég er sem sagt á leið til Boras í æfingabúðir til að sparka í nokkra rassa... En fyrsta æfingin mín er annað kvöld með Svíunum og svo eru það æfingabúðir frá laugardegi til Þriðjudags..Wink reyni að blogga úti ef nettenging er til staðar

kv anna soffia
Anna Soffia Vikingsdottir

koma heim a morgun

28. febrúar 2008 klukkan 15:05
er ekki buin ad vera med netid.. en motid gekk ekkert alltof vel fyrir sig og svo til ad baeta grau ofan a svart tha er eg buin ad vera raddlaus sidan a sunnudag.. gjörsamlega missti röddina hugsa ad thad e-h virus i gang var mjög slöpp en harkadi thad af mer og klaradi aefingabudirnar og gekk alltilagi midad vid heilsu adstaedur... Röddina er ad koma aftur.loksins er ekkert buin ad geta talad sidan a sunnudag.. er ad verda ansi pirrud ad folk skilji mig ekki... En annars bara farin ad hlakka til ad komast heim a morgunBrosandi
Anna Soffia Vikingsdottir

keppa á morgun

22. febrúar 2008 klukkan 18:22
jæja þá er ég bara komin upp í rúm og farin að slaka á fyrir morgundaginn.. aðeins að lagast í hálsinum sjáum hvernig hann verður á morgun (vona það besta).. en ætlaði mér að vakna kl 8 í morgun, það var ekki alveg að gerast endaði með að sofa til 10 sem var indæltBrosandi En ætlaði svo að taka þetta kíló af mér hjólaði í 25 mín og fór svo í gufu, og mer til mikillar gremju þá fóru aðeins 300 gr ekki alveg að ná þessu, en fór svo aftur eftir ég kom af judomótinu og þá fór þetta.. En vá hvað ég er óneitanlega heimsk stundum, hélt að ég hefði sko engu gleymt, ýkt ánægð með mig en nei í gær þegar ég ætlaði að fara að horfa á friends þá komst ég af því að ég gleymdi öllum myndunum mínum.. Öskrandiog það eina sem er hægt að horfa á í sjónvarpin fyrir utan það sem er þýtt yfir á ensku er cnn og mtv, svo þegar ég kem heim þá veit ég örugglega allt um það sem er að gerast í heiminum í dag og er alveg inní topptónlistinniUllandi En fyrsta glíman min á morgun er við canadísku stelpuna Roberge.. ég kann ágætlega á hana og það er bara að setja kraftinn í þetta.. en vá nöfnin sem eru á þessu móti þetta eru allt stelpur sem eru líklegar á olympíleikana

kv ann soffia

p.s læt vita hvernig gekk á morgun
Anna Soffia Vikingsdottir

Komin til Hamburgar..

21. febrúar 2008 klukkan 19:07
jæja þá er maður mættur eftir bara ágætis ferðalag þar sem ég svaf eiginlega allt flugið svo það var gott.. hálsinn er svona lala, allt að komaÓákveðinn því miður þá er bara ekkert hlýrra hér en á íslandi kannski ekki frost en það er svo mikill raki í loftinu, þvílíkur viðbjóður.. Þoli samt ekki eitt við þjóðverja að það er ekki hægt að horfa a tv hérna þar sem allt er þýtt.. fjandans þjóðverjar... em ætla í sturtu og fara snemma í háttinn
Anna Soffia Vikingsdottir

streptakokka sýking og Hamburg á morgun

20. febrúar 2008 klukkan 20:01
sælir mínu kæru vinir er alveg búin að vera agalega löt að blogga undanfarið, en það er bara ekkert merkilegt búið að vera að gerast, nema mín yndislega vinna og æfingar..

Auðvita er ég heppnasta manneskja í heimi, er nefnilega að fara til þyskalands á morgun að keppa á mjög erfiðu móti og fara í fáránlega erfiðar æfingabúðir, en daginn fyrir semsagt í dag fór ég til doksa og viti menn með streptakoka sýkingu (hvernig sem þetta e er nú skrifað)Óákveðinn er að drepast í hálsinum doksi gaf mér pensilín, reyndar sagði hann að ég ætti ekki að keppa en ætla nú að harka það af mér.. hlakkar þvílíkt til þar sem e-h af canada mönnum verða þar og þar á meðal Bianca vinkona mín..

en lofa að blogg úr þessari skemmtilegu ferð

kv anna utanlandsfari
Anna Soffia Vikingsdottir

íþróttamaður ármanns og fleira

24. desember 2007 klukkan 00:16
jæja, það var e-h smá kaldhæðnis húmor í seinustu atugasemd, svo það er eins gott að bloggaGlottandi

Á dögunum var ég valin íþróttamaður ármanns sem var nú aldeilis frábært, fékk þar ansi stóran farands bikar og er stefnan að ná honum aftur á næsta ári.. einnig varð ég valin judokona ársins svo lífið er gott varðandi það.. Er reyndar búin að lenda í leiðinlegum veikindum svo mér finnst ég ekki hafa æft nóg, en bæti úr því eftir jólin..
En jólin eru pakkfull af jólaboðum og svo er sssól ball á annan í jólum sem verður nú algjör snilldHlæjandi

 En jólaskapið er loksins að koma ekki seinna vænna, var að koma af laugaveginum, það er hefð að ég og brósi og mágur minn förum og verslum seinustu gjafirnar og núna skellti hanna systir sér með, svo það var bara gaman fyrir utan svona nettan kulda..

en ég óska öllum gleðilegra jóla og farsæld á komandi ári
Anna Soffia Vikingsdottir

Prófíll

  • Nafn: Anna Soffia Vikingsdottir
  • Netfang: annasoffia@judo.is
  • Um mig: judo stelpa með meiru

Klukkan

Könnun

Hvaða land er í uppáhaldi hjá ykkur